'Og þá flaug hrafninn - Saga úr sjónvarpinu' eftir Ingva Hrafn Jónsson, tíundi lestur
Dodany: Feb 7, 2012
Od: haukursmagnusson
Czas: 45:26
Níundi kafli: Albertsþátturinn Hér er komið að einum veigamesta kafla stórbrotinnar sögu Ingva Hrafns Jónssonar og viðureigna hans við Útvarpsráð, misjöfn öfl innan Sjálfstæðisflokksins og breytta tíma almennt. Ingvi Hrafn er tekinn og þreyttur eftir bæði leiðtogafundinn, hvar hann vann sér sess í hjörtum landsmanna, og erfiðra viðureigna við pólitískt Útvarpsráð varðandi flutning hans á fréttatíma fréttastofu Ríkissjónvarpsins. Einn ástsælasti stjórnmálamaður landsmanna, Albert Guðmundsson, er flæktur í meint hneykslismál sem veldur því að staða hans veikist innan Sjálfstæðisflokksins og hann neyðist til að segja af sér stöðu iðnaðarráðherra. Albert og 'Hulduher' hans ráða ráðum sínum á meðan flokksformaðurinn Þorsteinn Pálsson lætur hafa eftir sér í viðtali við keppinauta Ingva á Stöð 2 að Albert muni aldrei aftur gegna ráðherrastöðu fyrir hönd flokksins. Albert er ekki allskostar ánægður með þróunina, sem átti sér að mestu stað meðan hann var á ferðalagi erlendis og ófær um að bregðast við, og boðar komu sína í viðtal til þeirra Ingva Hrafns og Halls Hallssonar að loknum fréttum... Hér er hið magnaða viðtal Ingva og Halls endurbirt í heild sinni, viðtalið sem sáði rótunum að því að Ingvi var hrakinn úr starfi sem fréttastjóri! Æsispennandi kafli sem lætur engan ósnortinn. www.hrafninnflygur.tumblr.com
Kanał: Education
Tagi: ingvi hrafn Ínn ríkissjónvarpið fréttastofa ríkissjónvarpsins rÚv Ísland fjölmiðlar Íslenskir fjölmiðlar níundi áratugurinn albert guðmundsson borgaraflokkurinn sjálfstæðisflokkurinn hagsmunir sjálfstæðisflokksins hallur hallsson Útvarpsráð stjórnmál á Íslandi hafskip
Wyświetlenia: 56 Komentarze: 0